Ricky Rubio
Rubio með Cleveland Cavaliers árið 2021 | |
| Nr. 9 – Joventut Badalona | |
|---|---|
| Leikstaða | Leikstjórandi |
| Deild | Liga ACB |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæðingardagur | 21. október 1990 El Masnou, Spánn |
| Hæð | 188 cm (6 ft 2 in) |
| Þyngd | 86 kg (190 lb) |
| Körfuboltaferill | |
| Landslið | |
| Nýliðaval NBA | 2009: 1. umferð, 5. valréttur |
| Valin af Minnesota Timberwolves | |
| Ár í mfl. | 2005–nú |
| Liðsferill | |
| 2005–2009 | Joventut Badalona |
| 2009–2011 | FC Barcelona |
| 2011–2017 | Minnesota Timberwolves |
| 2017–2019 | Utah Jazz |
| 2019–2020 | Phoenix Suns |
| 2020–2021 | Minnesota Timberwolves |
| 2021–2023 | Cleveland Cavaliers |
| 2024 | FC Barcelona |
| 2025–present | Joventut Badalona |
| Tölfræði á NBA.com | |
| Tölfræði á Basketball Reference | |
Ricard Rubio Vives (fæddur 21. október 1990) er spænskur körfuknattleiksmaður. Rubio hóf feril sinn mjög ungur hjá Joventut Badalona og vakti snemma athygli fyrir hæfileika sína en hann lék fyrst í efstu deild Spánar aðeins 14 ára gamall.
Rubio var valinn í nýliðavali NBA árið 2009 af Minnesota Timberwolves en lék þó næstu tvö tímabil með FC Barcelona þar sem hann varð EuroLeague meistari árið 2010 og spænskur meistari árið 2011. Næstu 12 árin lék hann í NBA deildinni með Timberwolves, Utah Jazz, Phoenix Suns og Cleveland Cavaliers.[1] Hann sagði skilið við NBA árið 2024 og lék stuttlega með FC Barcelona aftur áður en hann tók sér hlé frá körfubolta af heilsufarsástæðum. Hann hóf aftur leik árið 2025 með Joventut Badalona.[2]
Landsliðsferill
[breyta | breyta frumkóða]Rubio lék lengi með spænska landsliðinu við mikla velgengni. Hann varð heimsmeistari með Spáni árið 2019 og Evrópumeistari árin 2009 og 2011. Hann vann einnig til silfurs með liðinu á Ólympíuleikunum árið 2008 og hlaut brons árið 2016.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Beloved ex-Wolves guard Ricky Rubio thanks Minnesota in full-page ad“. Minnesota Timberwolves On SI (bandarísk enska). 6 júní 2025. Sótt 14. desember 2025.
- ↑ Staff, Basketball Forever (24 júlí 2025). „Ricky Rubio Ends Retirement & Returns to Where It All Began“. Basketball Forever (bandarísk enska). Sótt 14. desember 2025.
- ↑ Andrés Aragón (7 júlí 2025). „Ricky Rubio on his mental health battle: "I want to play basketball, but I can't"“. Olympics.com. Sótt 14. desember 2025.